-Erika Mist

13.07.2007 16:28:47 / Erika

Föstudagurinn 13.

Jæja, þá er ég ekki lengur ein heima, reyndar alveg að verða vika síðan. En þar sem að ég er svo óhemju löt manneskja þá nennti ég ekki einu sinni að setjast niður við tölvuna og blogga!

Margar ákvarðanir sem ég hef verið að berjast við undanfarna viku. Það er nefninlega þannig að þegar fólkið mitt kom heim áttaði ég mig á því hvað mér finnst gott að 'búa' ein.
Þannig að núna er maður að skoða fjármálin, íbúðir og banka og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég er reyndar farin að efast um að eitthvað eigi eftir að gerast á næstunni í þessum málum. Drulluerfitt að kaupa sér sína fyrstu íbúð nú til dags. Skil ekki hvernig ungt fólk ætti að geta það!
Ég er allavega alltaf að skoða alla möguleika. Ég vil ekki leigja vegna þess að það er bara miklu hentugra að kaupa sér íbúð. Maður þarf bara að punga út hellings pening fyrst og eftir það er maður að borga minna mánaðarlega heldur en í leigu.

Seinasta helgi var góð, vinna á föstudaginn. Á Laugardaginn var líka vinna, en við 'krakkarnir' vorum búin að ákveða að fara í bústað á lau, ég og Thelma vorum að vinna til sirka half 12 og brunuðum þá að taka okkur til og ætluðum að fara að hitta strákana sem biðu voðalega óþreyjufullir eftir okkur! Alltaf að hringja.. haha..
Svo loksins þegar við vorum að leggja í hann hringdu þeir og sögðu okkur að þeir ætluðu að koma bara í bæinn og vera hjá Hauki þar sem hann var einn heima.
Þannig að kvöldið endaði þar með miklu glens og gamanríi. Reyndar barði ég flösku í vörina á mér þannig að hún bólgnaði og ég er ekki frá því að það hafi brotnað eins og eitt glas? Held nú samt að það hafi ekki verið mér að kenna?
Allavega fannst mér gaman þarna.. mjöööög gaman =p
alltaf best að vera bara í góðra vinahópi að skemmta sér.
Verðum að gera þetta mun oftar!

Í gær fór Tinna í nefkirtlatöku og fékk rör í eyrun. Allt gekk mjög vel sagði læknirinn en vá hvað það er erfitt að sjá barnið sitt svona ruglað og pirrað þegar það er að vakna eftir svæfingu og maður getur ekkert gert því allt sem maður gerir er ekki nógu gott.
Arnar er algjör lifesaver vegna þess að hann lánaði Tinnu Lion King um daginn og það var það eina sem hún vildi gera eða horfa á þegar við vorum komnar heim, það og að borða ís!

Hey stelpur! Er það ekki sleepover í næstu viku?
Ég er alveg ein og alveg game =)


» 9 hafa sagt sína skoðun