-Erika Mist

31.03.2006 22:50:56 / Erika

auli

Já.. Aulinn ég!!
Er að þjálfa svolítið mikið núna á meðan Helga er í Svíþjóð með stelpurnar og í dag var ég bara að setja tónlist fyrir prógrömm á fyrir m/1. flokk. og svo þegar það var búið skellti ég mér inn á ísinn.. lenti 2falt salcow og einu sinni 2falt toe-loop... ætlaði að gera það síðarnefnda aftur en eitthvað klikkaði í loftinu og ég virðist eitthvað tognuð smá í náranum =/ .. Þá fór Heiða að segja mér að fara varlega..
..og hvað geri ég??
....Billemand (held að það sé skrifað svona) .. oooog núna seinustu mínúturnar hef ég verið að fá meiri og meiri verk og stirðleika í bakið.. örugglega eftir það =/
já ég er nú meiri bjáninn =p ..
haha svo tók ég Böbba á hestbak í dag.. labbaði með hann frá kvosinni og upp fyrstu tröppurnar á Möðruvöllum =p .. þegar ég átti 1-2 tvröppur eftir með hann á bakinu náði ég ekki að lyfta löppinni nógu hátt.. rak tánna harkalega í tröppuna og datt með Böbba á bakinu!! Haha.. Ég verð að segja að það var nokkuð fyndið =p..
--
Eins og ég sagði áðan er Helga með stelpurnar útí Svíðþjóð.. sem sagt Urði, Birtu, Audrey, Ingibjörgu, Guðný, Sigrúnu, Helgu litlu og Telmu.. og svo fór Sólrún líka með sem fararstjóri..
Allaveganna, þá voru Urður, Birta,Helga, Sigrún, Ingibjörg og Telma að keppa í dag og þeim gekk bara alveg mjög vel =D (allavega betur en mér gekk þegar ég fór út að keppa á mínum yngri árum =p haha)
--
Gettu Betur var í gær! Við unnum! Við erum bersýnilega best.. eða strákarnir sem eru að keppa kannski .. haha.. en við (MA) erum bersýnilega besta stuðningsliðið =D ..
Þessi ferð var geðveik sko =) .. pínu bras í byrjun.. einhver rúta fór utan í einhvern vörubíl eða eitthvað .. vorum stopp í frekar langann tíma.. á endanum komumst við svo á stað og tókum pissustopp á Blönduósi. Mér var óglatt, heitt og með hausverk.. og Erla sagði að ég væri algjört tískuslys!! (var í flottum bol, náttbuxum, ullarsokkum og fínum skóm) ég meina, maður verður að vera í þægilegum fötum í rútu.. Erla tók mynd af mér og ef til vill læt ég hana fljóta með einhvertímann..
Ennnneh.. ég sá geðveikt flotta skó í kringlunni sem kkostuðu 4000 .. ég átti bara 2000 kall og syrgi þennan skó"missi" mjög mikið... Svo var keppnin.. (er að drífa mig að skrifa þetta því að ég er búin að vera svo lengi að þetta blogg kemur pottþétt ekki inn) .. þannig að ég ætla ekki að fara ítarlega í þetta allt saman .. eeeeen rútuferðin heim var samt án efa það besta við þessa ferð =) :**
-Erika

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 20:53:15 / Erika

Náði með láði!

A-hluti = 0      B-hluti = 0

weeeheee =D..

Ég náði með láði ..    haha Erla það var einhver sem sagði þetta í sjónvarpinu áðan! merkilegt að hafa aldrei heyrt eitthvað áður .. og heyri það svo 2x sama dag.. uss, þetta var bara brjálaður upplifunardagur =)

Ég fékk skemmtilega hringingu áðan. Ég var uppi með Tinnu og síminn hringdi niðri og Ýmir svaraði.. Síminn var til mín..
Ég: Halló?
The Dude: Halló.. Erika??
Ég: já..?
The Dude: já hæ.. Ég heiti Hákon og er bróðir Viljars.. ..veistu hver ég er..
Ég: já..já =)
Hákon (áður kallaður The Dude í þessari frásögn): Já ég er að gera ritgerð í uppeldisfræði og ætla að tala um eitthvað.. blabla.. ungar mömmur.. blabla.. *eitthvað svona sem ég man ekki*
Ég: jamm..
Hákon: Mig langaði að athuga hvort ég mætti nokkuð taka þig í viðtal um þetta?
Ég: heyrðu jájá.. þú mátt það =)
Hákon: Já, hvenær heldurðu að þú getir hitt mig?
Ég: Hvenær hentar þér?
Hákon: Helst sem fyrst..
ooog svo fundum við út stað og tíma..
Gaman að geta hjálpað fólki með ritgerðir =) er alveg búin að hjálpa tvemur með ritgerð þegar ég er búin að hjálpa honum og svo er ég að fara í eitthvað viðtal hjá einhverjum stelpum í hjúkrunarfræðinni einhvertímann =)

Já .. =/ .. annað tilgangslaust blogg, annan daginn í röð ..

úff..


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:12:50 / Erika

haha

Ýmir: *að reyna að kitla mig* kitlar þér?
Ég: nei..
Ýmir: kitlar þér núna *fer undir stól*
Ég: nei!
Ýmir: En núna??
Ég: Nei.. mig kitlar aldrei!
Ýmir: Ekki einu sinni þegar þú ert sofandi?? =o

hahaha .. geðveikt hissa =p

Gettu betur ferð næsta fimmtudag.. Engin menningarferð.. Búið að fresta henni um viku.. Ég ætla ekki.. Fer frekar í fermingarveisluna hennar Ingibjargar =D wee =D That will be awesome because she's so cute and fun and crazy in the head ;) tíhí..

ááái.. Ýmsi kleip mig =O hahah svo dó hann úr hlátri =D hahahha...

Váááá .. tilgangslaust blogg =/ ... hmm ..


Ég er að fara í bóklega ökuprófið kl. 15:00 á morgun!!!


-Erika


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 11:09:29 / Erika

Ratatoskur

Núna eru einhverjir opnir dagar í skólanum sem heita Ratatoskur eða eitthvað álíka skrýtið.. Maður má velja á milli námskeiða og þarf að safna 8 punktum svo að maður fái ekki skróp =/ .. Ég er að fara í Rokkspinning á eftir og verð þá komin með 8 punkta..
Fór á einhvern fyrirlestur í gær um eitthvað skíðafjall í Austurríkjunum, sex on the beach fyrirlestur og svo fór ég í Boot Camp.. Svo í dag fer ég í þarna rokk spinning.. Ég er bara að drepast í líkamanum (strengir) núna þannig að það verður fróðlegt að fara í spinningið..
Boot Camp er geðvikt gaman og brjálað erfitt.. hefði ekkert á móti því að fara á þetta 6 vikna námskeið en ég hef bara aldrei tíma .. er alltaf að þjálfa eða í skólanum .. svo er á einhverjum morgnum kl. 6:10 en það er fullt í þá tíma þannig að maður þyrfti að fara á einhvern biðlista og vesen..

Hehe á meðan ég var að skrifa þetta kom til mín danskur strákur (það eru danskir krakkar í heimsókn hjá málabkkjunum í 2. bekk) og hann var að biðja mig um að hjálpa sér að þýða eitthvað yfir á íslensku =p .. Hann sagði að ég væri góð í dösnku =D .. wee .. hann er svolítið sætur sko =D .. haha Svo situr hann hérna við hliðiná mér núna .. haha vona að hann skilji ekki mikla íslensku og sé að horfa =p .. Það væri vandræðalegt..

En annars var verið að segja okkur í gær að menningaferðin væri inní Gettu Betur ferðinni .. sem sagt farið fim. 30 Mars og ko ... (haha núna var strákurinn að spurja hvar Þ væri á lyklaborðinu =D) ..mið aftur á sun eða eitthvað .. Ég ætla að reyna að fara =) á eftir að tala við mömmu og pabba og svona .. vona að ég megi það =)

-Erika

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 15:40:21 / Erika

Einu sinni..

Einu sinni í gamla daga átti ég Folk.is blogg ..
Mér datt í hug áðan að kíkja aðeins á það.
Ég fór í gestabókina og skoðaði gamlar kvittanir og sá þar margt skemmtilegt.. En mest stóð samt uppúr sálfræðingavitleysan sem var í gangi þarna þegar ég var ólétt.. Ég veit ekki hvort einhverjir muna eftir þessu, en það voru nú skrambi margir sem skrifuðu skoðun sína á þessari heimsku í manneskjunni.. ef þið farið inná http://www.folk.is/misty_beip/?pb=gestabok&limitf=110 þá getið þið séð hvar Guðbjörg Vala Eiðsdóttir hefur tjáð sig þann 29. apríl 2005.. og svo er náttúrulega hægt að sjá þarna framar hvað var sagt um þetta og svona ..
Æji mér fannst gaman að sjá þetta =D þótt mér hafi ekkert fundist þetta sérlega gaman þegar þetta gerðist .. var orðin nokkuð þreytt á óþroskuðum einstaklingum sem héldu að lífið væri bara búið hjá mér útaf því að ég væri ólétt..
Pff, Allir þið óþroskuðu einstaklingar sem þorðuð ekki að tala við mig beint heldur gerðuð það á gestabók inná folk.is NAFNLAUST.. You were wrong!! Ég á mér bara skrambi mikið og gott líf!
Ég fór í framhaldsskóla, ég keypti mér bíl, ég á fallegustu stelpu í HEIMI og frábæra vini, gamla sem nýja!!
Ég á mér örugglega meira líf en þið öll óþroskuðu fólk til samans!

Svo voru auðvitað fólk sem var ótrúlega gott og stuðningslegt .. Mest vinir mínir en það voru líka nokkur fólk sem ég kannast bara við eða þekki ekki neitt sem skrifaði fallega til mín og voru bara mjög góð =) .. Takk fyrir það :*
Hehe ég er meira að segja með sumu af þessu fólki í skóla núna ;) ..

En jæja .. að öðrum málefnum, það verður önnur Gettu Betur ferð 30. mars og ég ætla sko að faaara!! Man ekki hvort ég var eitthvað búin að skrifa um hina.. En hún var allavega frábær.. Vona að þessi verði svipuð =p ..

Erika


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 22:51:26 / Erika

Brokeback mountain..

Vá .. Ég hef farið á margar myndir í bíó gegnum lífsleiðina (öll mín 16 ár og ekki einu sinni það) ..
Ég táraðist á LOTR myndunum og 4 brothers.. Eeeneh núna rétt áðan upplifði ég svolítið sem ég hélt að ég myndir aldrei upplifa ..
Ég fór með Heiðu í bíó, við fórum á Brokeback Mountain, áður en myndin byrjaði var þar fólk úr 3 bekk sem sagði okkur að það væri að koma annað kvöldið í röð og að myndin væri ekkert smá sorgleg og maður færi mikið að grenja.. Ég lét það ekkert á mig fá og beið bara eftir að myndin byrjaði.. Hún byrjaði .. Ég horfði .. Ég hugsaði ,,tjah, þetta er nú ekkert svo slæmt.. ekkert sorglegt!" .. Svo kom hlé, eg fór að pissa og svo byrjaði myndin aftur .. Einhvertímann í seinni hlutanum fór ég að tárast .. En mér stóð alveg á sama,.. það hefur gerst áður... svo í endann.. þá réð ég varla við mig lengur.. Myndin kláraðist og ég reyndi að drífa mig eins hratt út og ég gat.. Heiða var rétt á undan mér.. og þegar út var komið brustum við ísmá grát.. hlupum að bílnum, Heiða opnaði, við hoppuðum inn og brustum í hlátursgrát! váááá´blendnar tilfinningar.. hehe þetta var geðveik upplifun sko ..
Svo hefur mér verið sagt að ég sé tilfinningalega köld eða eitthvað þannig ..

...pff I proved them wrong!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 20:49:52 / Erika

B&Umót

Helgin búin.. reyndar löngu búin.. but who cares =)
Helgin var góð, mikið hlegið og talað, svolítið um að eiga stelpur í sæti =D það var flott =D.. Svo var reyndar eitthvað vesen eins og er alltaf.. en ætli það verði ekki að vera alltaf eitthvað svoleiðis..
Ég vissi samt ekki hvað maður getur orðið stressaður við það að þjálfa.. Ég hef aldrei verið stressuð þegar ég er að fara að keppa, en núna þegar ég var að þjálfa var ég stundum að drepast úr stressi yfir því hvernig stelpunum myndi ganga =o .. Skrýtið ..

Það er geðveikt langt síðan að ég hitti Thelmu =o .. ætlum að vinna eitthvað í því í næstu viku ;) .. hún er sko nefninlega að fara suður til pabba síns á morgun =) ..
Ég er líka að fara suður á morgun en bara með skólanum á Gettu betur =) Mig hlakkar til!! 6 rútur sem fara held ég =D

Svo á Erla afmæli á morgun =) búin að ná bílprófinu og alles og ætlar að koma að sækja mig og skutla mér í skólann á morgunn =D .. oooog svo er ég og Elva líka búnar að kaupa handa henni afmælisgjöf .. You better like it!! =D



.. ...

.

» 5 hafa sagt sína skoðun