-Erika Mist

22.04.2007 20:37:43 / Erika

Summer love? .. It would be sweet =)

Jæja, sumarið á víst að vera komið.
Það fer voðalega lítið fyrir því. Allavega ennþá!

Ég held að sumarið mitt eigi eftir að einkennast af mikilli vinnu og litlu fríi.
Byrja á samning á strikinu 1 maí og eftir það held ég að ég eigi bara eftir að vera að vinna af mér rassgatið! ekki eins og það sé eitthvað slæmt. Væri alveg til í að losna við smá af því.
Veit ekki hvernig vaktirnar mínar mínar eru eða neitt. Önnur hver helgi í fríi væri náttúrulega dásamlegt, allavega þriðja hver. En mér er samt í rauninni alveg sama. Meiri vinna þýðir meiri peningur.
Annars langar mig bara í eitt þetta sumar. Útilega! Það eru mörg ár síðan ég fór í útilegu síðast og í sumar ætla ég í útilegu. Þótt ég fari ein! Haha neeeei.. Ekki ein..
Tinna byrjar svo í leikskóla í sumar, 18 júní. Það verður gaman fyrir hana!

Á föstudaginn héldu Birkir og Arnar uppá afmælið sitt, 18 ára drengirnir. Ég fór þangað með Ástu. Ásta stoppaði ekki lengi! haha..
Allavega var þetta ágætis kvöld að mestu. Var komin heim um hálf 4 ?
Mamma vakti mig svo um 8 held ég, ég fór í sturtu og mamma skutlaði mér svo niðrá svell þar sem Akureyrarmótið var í fullum gangi. Ég mætti með vatnsflösku og náði að stúta þrem svoleiðis fyrir hádegi.
Ég er samt ekki mikil vatnsmanneskja.
Var komin heim um 14 og steinsofnaði til hálf 8 um kvöldið. Ásta kom svo til mín og við kúrðum og horfðum á John Tucker must die með Urði. Sótti svo mömmu og pabba útí bæ um miðnætti og fór með þau að kaupa hamborgara.
Fór svo heim og steindrapst uppí rúmmi úr þreytu.
Ég held ég hafi fengið allar gerðir þynnku þennan dag!

Emma hringdi í mig í nótt. Ég bara wtf? Am i dreaming..
Neinei, mig var ekki að dreyma! Hún hringdi og spurði hvenær það væri hægt að sækja um í VMA.
Spurning hvaða pælingar eru í henni?
Það væri frábært að fá hana aftur heim!
Sweet home Akureyri!
Emma komdu heim.. Held að við stelpurnar værum allar meira en til i það!

Allavega, ég ætla að fara að kíkja á sjónvarpið, svæfa Tinnu og keyra svo kannski eins og einn eða tvo hringi í bænum.
Karen Sif skrifaði
Wíjj :D ég sagði henni númerið hjá þér tilað hún gæti spurt og ég sakna hennar! Sjáumst love :D haltu áfram að blogga, það er gaman! p.s þú átt bráðum afmæli, gerum eitthvað þá einsog þegar Thelma átti afmæli :D hihi
-ThelmaRut skrifaði
víj víj víj víj víj.. emma kemur 99,9% hingað í haust í skóla:D víj vij víj!! hún sagði það:D.. ég er nývöknuð og allsber og ætla að vakna og fara í föt :) ... EN FYRST! .. ætla ég að dansa STRÍÐDAAAANS :|
Ásta skrifaði
hummm ég stoppaði! alveg smá allavega.... þurftir kannski ekki að auglýsa afhverju ég stoppaði ekki lengur haha nei nei bara fyndið;) það man þá ábyggilega ekki neinn ennþá... En John Tucker var bara snilld... ég væri samt til í bróðir hans bara flottur gaur, skrítið samt hvað ég kann mig, eða kannski bara næstum því edrú þessa helgina:) Sé þig sem fyrst sæta;*
Erla Rún :) skrifaði
Veistu, a þessum 3 dögum gubbupestarinnar minnar (is that right?) þa hef eg ekki drukkið neitt annað en vatn og er svo ótrúlega hissa a því hvað vatn er gott :o So fresh! :D Er einmitt með eitt stórt vatnsglas fyrir framan mig akkurat nuna :D En annað, hvenær er annars hægt að byrja að sækja um i VMA? :$ ætla að taka nokkra tima þar i haust, you know what im saying? ;$ allavegana.. love :*
karen j skrifaði
ótrúlegt hvað maður man alltaf eftir þessum degi...... humm I wonder why!!;) til hamingju með afmælið skvíz:*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.