-Erika Mist

05.11.2007 16:58:05 / Erika

5 nóv

Haha Tinna situr hérna við eldhúsborðið að borða snúð og tala við sjálfa sig..
Allt í einu leit hún við áðan og sagði:
Tinna: Ert þú með buddu?
Ég: haha já
Tinna: ókei.... *smá þögn*.. má ég sjá??

hahahha.. ég hélt að ég ætlaði aldrei að hætta að hlægja..




» 5 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 16:38:45 / Erika

veiklingur

FOKK!! stóllinn sem ég sit á datt í sundur =/
ég datt á gólfið!
Spurning um að fara að leggja aðeins af? hahaha!!
neeeeei segji svona, þetta gerðist ekkert af því að ég er orðin of feit.. Stóllinn er bara eitthvað bilaður..
Þetta var samt vont..

Ég er veik, ég kann ekki að vera veik..
var alveg ógeðslega þreytt eftir vinnu í gær, enda búin að vera að vinna 12 tíma vaktir eða meira í 5 daga og skellti mér svo á djammið á laugardeginum..
Þannig að ég fór bara beint heim að sofa til að vera úthvíld og hress fyrir vinnuna í dag..
Ég sofnaði snemma og svaf mjöööög vel í alla nótt.. Vakna svo klukkan hálf 9 í morgun og get varla andað fyrir hálsbólgu.. Mér fannst það ekki gott =/ Mér fannst það eiginlega bara vont!
Ákvað nú samt að fara í vinnuna en var send heim eftir 20 mínútur! hahaha..
Er svo bara búið að fara versnandi í dag með bein og skinn verki og þessa helvítis hálsbólgu!
Var svo heppin að finna gamla leirunestis peysu herna sem er xtra large þannig að ég mér er ekkert búið að vera neitt mjög illt í skinninu ;) haha
En ég var nú samt svo úthvíld eftir þennan mikla og góða svefn minn í nótt að ég gat ekkert reynt að sofa þetta úr mér í dag =/ .. Þannig að mér er búið að leiðast... MIKIÐ

Þegar ég verð frisk ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt með stelpunum..
út að borða eða eitthvað.. vera fínar og sætar og taka myndir og gelgjast aðeins!
Maður verður nú að eiga sín gelgjukvöld þó að maður sé orðin 18 ára móðir ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 15:12:57 / Erika

Ég er fake og ég fíla'ða

Ég var komin í vikufrí í fyrradag.. ég fór að vinna í gærkvöldi!
Ekki séns að ég ætli að vinna meira næstu 6 daga! Vegna þess að eftir þetta vikufrí fer ég að vinna í heila viku og ég get alveg lofað ykkur því að ég fæ ekki frídag í vinnuvikunni í staðinn fyrir vinnudaginn sem ég vann í frívikunni minni..
Vá hvað það var erfitt fyrir mig að skrifa þessa setningu. Alltaf að ruglast!


Ég er fake, ég er með gervineglur, hárlengingu
og að fara að kaupa mér ljósakort!

Ég er fake og ég fíla'ða!

Fór í sjallann á laugardaginn með gervineglurnar mínar og hárlenginguna, það var klikkað fjör!Ég dansaði, drakk og hitti fólk.
Spjallaði meira að segja við fólk sem ég hef varla talað við í ár, það var gott.
Ég er að fara á Pabbann í kvöld með Karen, Stebba og fleirum sem komast. Mig hlakkar til, hef heyrt að þessi sýning sé mjög góð og fyndin!

Á morgun er ég búin að vera á lausu í akkurat ár.
Ég er ekki svona klikkuð að vera með þetta svona alveg á hreinu, ég man það bara útaf því að það gerðist á afmælisdaginn hennar Karenar.
Þannig að núna í fyrsta skiptið hef ég ekki verið á föstu í heilt ár! Eitthvað sem að ég hélt að myndi aldrei gerast, man að þetta var alltaf markmiðið á mínum yngri mjög svo kærastaríkum árum en það markmið fór alltaf til fjandans kannski 3 manuðum seinna.
Núna er ár liðið og mér líður bara mjög vel svona lausri og liðugri, ég er ekkert að flýta mér í samband en ég ætla samt ekkert að reyna að haldast einhleyp! Hlutirnir bara gerast ef þeir gerast! Hef engar áhyggjur af þessu.. Hakúnamatata ;)

Karen ástarpungur á afmæli á morgun, 18 ára gamlingi =) ég ætla að gefa þer eitthvað sætt!

mánuður og 5 dagar í reunionið! Geeeet ekki beðið!

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 23:12:07 / Erika

Ert'Alveg Grilluð eða?

Ég held að ég sé alveg algjörlega að verða snarhoppandi geðveik.. Farin að sjá sms í símanum mínum sem hverfa svo á dularfullann hátt og þegar ég spyr sendandann útí smsið þá veit sendandinn ekkert um hvað ég er að tala.. Mér hefur fundist ég hafa fengið sms frá bæði Ástu og Didda.. og í bæði skiptin var ég upptekin og gat ekki svarað! og svo þegar ég fer í símann til að svara, þá er bara ekkert sms þarna!

Palli í sjallanum á morgun! Yeah Beibeh!
matur hjá mér um svona 8 leytið með nokkrum kátum kumpánum og svo skundar maður í bæinn og dansar úr sér mest allt vit! váá mig hlakkar til!

Annað sem mig hlakkar til! Ég, Thelma og Hreinn erum að skipuleggja reunion fyrir grunnskólakrakkana.. Haha maður hefur nú heyrt að fólk sé að segja að þetta sé alltof fljótt þar sem það eru ekki einu sinni 5 ár síðan við útskrifuðumst! .. ómæ! Það er engin heilög regla að það verði að líða 5 ár! Haha Alveg grilluð eða?.. Maður bjóst nú samt eiginlega við einhverju svona frá einhverjum, en þeir sem vilja hafa það heilagt geta bara beðið í 3 ár í viðbót.. Ekki nenni ég því! haha.. Ég vil þetta bara strax í nóvember! Getum haft þetta bara.. 5 ár síðan við fórum á Reyki eða eitthvað shit efað þessi fimma er eitthvað heilög! =p..


Á ég fallegasta barn ever eða?
Tinna: Ett'alle gilluð ea?



» 5 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 12:36:02 / Erika

1sept07

Tölva? Hvað er það?

Er ég alveg algjörlega búin að skíta á mig í bloggbransanum?
Já ég held það..
Ég er ekki hætt, en ég ætla samt ekki að blogga fyrr en bloggandinn kemur yfir mig.

Hættu að rugla í mér!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 16:28:47 / Erika

Föstudagurinn 13.

Jæja, þá er ég ekki lengur ein heima, reyndar alveg að verða vika síðan. En þar sem að ég er svo óhemju löt manneskja þá nennti ég ekki einu sinni að setjast niður við tölvuna og blogga!

Margar ákvarðanir sem ég hef verið að berjast við undanfarna viku. Það er nefninlega þannig að þegar fólkið mitt kom heim áttaði ég mig á því hvað mér finnst gott að 'búa' ein.
Þannig að núna er maður að skoða fjármálin, íbúðir og banka og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég er reyndar farin að efast um að eitthvað eigi eftir að gerast á næstunni í þessum málum. Drulluerfitt að kaupa sér sína fyrstu íbúð nú til dags. Skil ekki hvernig ungt fólk ætti að geta það!
Ég er allavega alltaf að skoða alla möguleika. Ég vil ekki leigja vegna þess að það er bara miklu hentugra að kaupa sér íbúð. Maður þarf bara að punga út hellings pening fyrst og eftir það er maður að borga minna mánaðarlega heldur en í leigu.

Seinasta helgi var góð, vinna á föstudaginn. Á Laugardaginn var líka vinna, en við 'krakkarnir' vorum búin að ákveða að fara í bústað á lau, ég og Thelma vorum að vinna til sirka half 12 og brunuðum þá að taka okkur til og ætluðum að fara að hitta strákana sem biðu voðalega óþreyjufullir eftir okkur! Alltaf að hringja.. haha..
Svo loksins þegar við vorum að leggja í hann hringdu þeir og sögðu okkur að þeir ætluðu að koma bara í bæinn og vera hjá Hauki þar sem hann var einn heima.
Þannig að kvöldið endaði þar með miklu glens og gamanríi. Reyndar barði ég flösku í vörina á mér þannig að hún bólgnaði og ég er ekki frá því að það hafi brotnað eins og eitt glas? Held nú samt að það hafi ekki verið mér að kenna?
Allavega fannst mér gaman þarna.. mjöööög gaman =p
alltaf best að vera bara í góðra vinahópi að skemmta sér.
Verðum að gera þetta mun oftar!

Í gær fór Tinna í nefkirtlatöku og fékk rör í eyrun. Allt gekk mjög vel sagði læknirinn en vá hvað það er erfitt að sjá barnið sitt svona ruglað og pirrað þegar það er að vakna eftir svæfingu og maður getur ekkert gert því allt sem maður gerir er ekki nógu gott.
Arnar er algjör lifesaver vegna þess að hann lánaði Tinnu Lion King um daginn og það var það eina sem hún vildi gera eða horfa á þegar við vorum komnar heim, það og að borða ís!

Hey stelpur! Er það ekki sleepover í næstu viku?
Ég er alveg ein og alveg game =)


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 13:07:22 / Erika

30 júní '07

Mig langar í útilegu!!

Ég er svo eirðarlaus núna! Veit ekkert hvað ég á af mér að gera þegar ég er ekki að vinna og ekki með Tinnu..
Eða þegar ég er búin í vinnuni og Tinna er sofandi!
Geri samt eitthvað á eftir, áður en ég fer í vinnuna =) Berglind kom nefninlega í gær. Var á Dalvík í gær og nótt, kemur svo hingað á eftir.. Vonandi snemma svo við höfum smá tíma áður en ég fer í vinnuna.
Berglind á afmæli í dag =D Til hamingju :**

Er nógu gott veður til að fara í sólbað? .. neeee ég held ekki.. sólbaðssund? já alveg pottþétt en ég vil það ekki af því að ég ætla ekki að missa af Berglindi =)

Hvað er málið með vma umsóknina mína?
Er ekki búin að fá neitt bréf um það hvort ég sé komin inn eða ekki, en allir aðrir eru búnir að fá það =/
Thelma sagði að það væri seinasti séns á mánudaginn til að borga þetta en ég hef bara ekkert til að borga! Og það er heldur enginn ógreiddur greiðsluseðill í netbankanum eða neitt!
Skrifstofurnar í vma eru lokaðar og ég veit EKKERT hvað ég á að gera!
Ég sótti náttúrulega ekki sjálf um, fór að tala við brautarstjórann og hún sagðist ætla að sjá um þetta =/ Spurning hvort hún hafi gleymt því?

Ojbara, ljótustu bolir í heimi voru að koma í vinnuna í gær, eigum að veraí þeim yfir daginn. Þetta eru svona pólóbolir (allt í lagi með það ) en það eru asnalegar stærðir, ljótir daufir litir og draga algjörlega ALLT sjálfsálit niður!
Fór í einn bleikann í gær og leið eins og Svíni!
Mér leið bara illa og langaði að fara að grenja.. neeeei kannski ekki alveg =)

Ég er farin í sturtu að þvo alla þessa gremju úr mér =)


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 21:16:28 / Erika

Ónefnd færsla

Jæja, núna er ég orðin algjörlega einstæð móðir í fyrsta skipti frá því að Tinna fæddist.
Fjölskyldan er farin til útlanda! Án mín og Tinnu!
Þannig að núna erum við bara tvær einar heima í 2 heilar vikur..
Það verður geðveikt =) Ég hef alltaf fengið alla þá hjálp og pössun sem ég hef beðið um hérna en núna er það ekkert lengur og það er bara æðislegt. Maður verður að fara að venjast þessu, sérstaklega fyrst við erum að fara að flytja suður. Það er nú samt ekki fyrr en eftir ár held ég.

Tinna átti afmæli á laugardaginn, það var pabbahelgi þannig að ég mætti bara þangað í smá veislu =) hún fékk fullt af flottum fötum og dóti.
Svo gáfu mamma og pabbi henni einhverskonar borð sem hún getur setið við og teiknað og litað.
Þegar ég sá þetta spurði ég mömmu hvort þetta væri eitthvað sérstakt hint um það að ég ætti að fara að flytja út, af því að borðið er pínu stórt. Hún sagði þá bara að þau hefðu hugsað þetta þannig að þetta ætti að vera fyrir hana útá palli.
Ég held samt að þetta hafi verið svona laumulegt hint.
Búin að fá nokkur svona hint eins og t.d.
Pabbi: Hvernig væri að þú myndir finna þér kærasta og flytja út?

Haha kannski ekki alveg eins laumulegt og kannski meira sagt í gríni.. eða hvað? .. hmmm..

Allavega, Tinna byrjaði svo í aðlögun á leikskóla á mánudaginn seinasta og er alveg að meika það þar. Ekkert mál að skilja hana eftir og svona.
Held að það sé erfiðara fyrir mig en hana. haha..

Stundum pæli ég í því sem hefur gerst, hugsa hvort að eitthvað hefði getað farið betur ef ég hefði farið öðruvísi að hlutunum.
Ég er með eitt svoleiðis núna sem ég hugsa mikið um. Búin að hugsa svo mikið um það núna að mig er farið að dreyma um þetta!
Góður draumur í nótt. Pinu spes, en skemmtilegur =)

If only i could turn back time..

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 23:25:32 / Erika

Hvað er málið?

Hvað er málið með það að þegar Tinna er í sundi halda alltaf allir að hún sé strákur?
Er ég eina mamman sem lætur dóttur sína vera bara í sundbrók?
neeei alveg örugglega ekki!
Ég meina, til hvers að hafa stelpurnar í sundbolum? eða BIKINÍ? (sem er náttúrulega bara alveg fáránlegt að sjá )
Það er ekki eins og þær hafi eitthvað meira að fela en strákarnir =/ Þau eru lítil börn! Líkaminn þeirra allra er alveg eins! Fyrir utan partinn sem BRÓKIN felur..
Ég er ekkert að segja að það sé eitthvað slæmt að láta stelpurnar vera í sundbol.. alls ekki.. bara gjörið svo vel..
En það er alls ekkert hægt að alhæfa það að lítill tveggja ára krakki sem er bara í sundbrók sé pottþétt strákur.
Ég meira að segja keypti handa henni græna sundbrók með bleikum og rauðum blómum. hugsaði með mér í búðinni að þetta væri nú ekkert strákalegt. En jújú greinilega!
Meira að segja þótt ég kalli á hana með nafni, TINNA LIND, heldur fólk áfram að segja, hann eða strákurinn!

Og hvað á það að þýða að vera eitthvað að skipta sér að því hvort ég láti barnið mitt vera með kúta eða ekki í barnalauginni??
Bláókunnugt fólk, gestir sundlaugarinnar takið eftir, ekki starfsmenn.
Ég læt auðvitað kúta á hana þegar við förum í aðrar laugar, en þegar hún er í barnalauginni, og hún er oftast í buslulauginni þar sem rennibrautin er, leyfi ég henni að vera kútalausri.
Ég veit að auðvitað er auðvelt fyrir svona lítil börn að drukkna í mjög grunnum pollum, en ég er aldrei langt frá og lít ekki af henni allan tímann.
Mikið verið að tala núna um þessi litlu börn sem er verið að bjarga frá drukknun og þess háttar, en bara fyrirgefðu, ég er ekki að reyna að móðga neinn, en hvar voru foreldrarnir? eða einhver sem er að passa barnið á þessum tíma? Auðvitað geta slysin gerst, en ég trúi ekki að það væri svona mikið um þetta ef fylgst væri nógu andskoti vel með.
Ég lít ekki af Tinnu nema einhver sem ég treysti algjörlega sé að sjá um hana.

Ég veit ekki, ég er bara pirruð á afskiptasemi í fólki, sérstaklega bláókunnugu fólki, þreytt og bitur, erfiður dagur framundan.
Er samt stolt af Tinnu.. hún er loksins farin að vilja sleppa mér alveg þegar hún er með kútana og gerir sjálf =) Hún var ekkert smá montin þegar hún fattaði að hún gæti þetta alveg ein =D

Mig langar að hún læri á píanó..
Eða gítar!


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 22:04:22 / Erika

uuuhæ?

Hæ!

Ég heiti Erika og ég á víst þetta blogg. wtf? What's up with that?

Seinustu dagar hafa einkennst af vinnu.. Nei! Reyndar ekki! Djöfulsins Rugl!
Ég er nýkomin úr tveggjaoghálfsdags fríi.
Kærkomið frí þar sem ég var ekki búin að fá nema 1 frídag í guðmávita í hvað langan tíma.
Ég er samt búin að vera að vinna mikið! Eins gott að launareikningurinn minn fái að finna fyrir því á morgun.. eða hinn? .. Hvenær ætli maður fái útborgað þarna?
Ég var í fríhelgi helgina 4-6 maí...
..ég fæ næst fríhelgi 22 júní..
ég ætla ekki suður þá! þá er den hele familia að fara til Rhodos og ég og Tinna verðum einar heima í 2 vikur. Ljúft líf!
Verð væntanlega að vinna helling á meðan..

Vá hvað ég er fegin að vera ekki í ma lengur! EF ég væri ennþá þar væri ég í prófum núna. Allir að læra, nenna/komast ekki með mér í bíó!
Mig langar i bíó. Er búin að gera nokkrar tilraunir í fríinu til að fá einhvern meðmér í bíó. Ennþá hefur það ekki tekist.
Hvenær eru þessi helvítis próf búin?

Karen bauð mér í ljós á þriðjudaginn. Thank's hon :*
Fórum svo til Birkis að hitta hann, Arnar og Brodda.. Þeir voru bara í Football manager eða eitthvað svoleiðis allann tímann.. Stuð í þeim! Nooot! *haha nýbúin að endurnýja kynni mín við Wayne's world*


                                         
                                                       Tinna er Töffari!!
                               

                  

-Erika workaholic


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 20:43:17 / Erika

Back to school!

Já, seinasta blogg kannski aaaðeins í ruglinu.. =/

Ég er komin með neglur.. Er eins og hálviti að reyna að skrifa hérna..

Á að vera að vinna núna, eeen ég er með veikt barn.
Tinna búin að vera lasin í nokkra daga.. Samt búin að vera að vinna smá.. Var að vinna í morgun og sagði Hebu ð Tinna væri veik.. og þá sagði hún að ég mætti alveg vera heima með hana í kvöld ef ég vildi =)
Ég vildi.
Þarf svo ekki að mæta fyrr en 5 á morgun en átti að mæta 11 .. ljúúúft =)

Ég er allavega búin að vera að vinna eins og motherfucker þarna síðan ég byrjaði á samningnum.. Samt kannski ekki.. en mér finnst það .. eeh..
Líkar mjög vel við að vinna þarna =) Ágætis mórall..

Hvernig í ósköpunum getur maður verið algjörlega ósýnilegur fyrir einhverri manneskju sem þótti einu sinni vænt um mann ?
Ég skil þetta ekki aaaalveg.. Það er ekki eins og ég hafi gert eitthvað =/

Árshátíð SA næstu helgi, s.s. 18 maí..
Ekki nógu góð aðsókn?
Vonandi, þar sem ég er búin að redda mér fríi seinnipartinn þennan dag.

Vá mig hlakkar svoooo til að byrja í skóla aftur =)
Áttaði mig á því eftir smá skólafjarveru að ég hitti flesta bara í skólanum..
Sé samt ekki eftir því að hafa hætt í MA.. Better of without it!
Engan veginn að fitta inn í þetta.. Kannski samt ef maður hefði dottið inní betri bekk? Þar sem væri samheldni. Get ekki sagt að fyrsti bekkurinn né annar bekkurinn sem ég lenti í hafi verið eitthvað samheldinn með góðan móral.. Laaaangtífrá!
Allavega.. Mig hlakkar til að byrja í skóla =D.. Og mig hlakkar til að læra það sem ég ætla að læra!

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 00:22:09 / Erika

Staffingdjemm

Hey pípul..
Me and silly Bean are in a staffingdjemm..
I just have to say that I have never seen anyone as sexy as Erika Mist!!!! wow!! ONE SEXY MAMA!!!!!

Silja is the most Sexyiest Not Mama in the world ;) .. Because she doesn't have a baby!=D

 

Doddi er búinn a'ð segja m+e þessa sö0gu

haha ég hef aldrei heyrt hana áður =o

 eina kokteilsósu takk!

SILJA VILL FÁ BJÓR!

And  Húlíó tooooo!

Drunkesssssss...

Vissir þú að hun elva kristín getur gert fyrirmyndarklof úr einungis öxlunum???

hahahahha.. já! ég sá það gerast áðam =D mjööög 6í
Klikkaður skítur!

Komum okkur eitthvert út man!!

okei man

bæææ

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 20:37:43 / Erika

Summer love? .. It would be sweet =)

Jæja, sumarið á víst að vera komið.
Það fer voðalega lítið fyrir því. Allavega ennþá!

Ég held að sumarið mitt eigi eftir að einkennast af mikilli vinnu og litlu fríi.
Byrja á samning á strikinu 1 maí og eftir það held ég að ég eigi bara eftir að vera að vinna af mér rassgatið! ekki eins og það sé eitthvað slæmt. Væri alveg til í að losna við smá af því.
Veit ekki hvernig vaktirnar mínar mínar eru eða neitt. Önnur hver helgi í fríi væri náttúrulega dásamlegt, allavega þriðja hver. En mér er samt í rauninni alveg sama. Meiri vinna þýðir meiri peningur.
Annars langar mig bara í eitt þetta sumar. Útilega! Það eru mörg ár síðan ég fór í útilegu síðast og í sumar ætla ég í útilegu. Þótt ég fari ein! Haha neeeei.. Ekki ein..
Tinna byrjar svo í leikskóla í sumar, 18 júní. Það verður gaman fyrir hana!

Á föstudaginn héldu Birkir og Arnar uppá afmælið sitt, 18 ára drengirnir. Ég fór þangað með Ástu. Ásta stoppaði ekki lengi! haha..
Allavega var þetta ágætis kvöld að mestu. Var komin heim um hálf 4 ?
Mamma vakti mig svo um 8 held ég, ég fór í sturtu og mamma skutlaði mér svo niðrá svell þar sem Akureyrarmótið var í fullum gangi. Ég mætti með vatnsflösku og náði að stúta þrem svoleiðis fyrir hádegi.
Ég er samt ekki mikil vatnsmanneskja.
Var komin heim um 14 og steinsofnaði til hálf 8 um kvöldið. Ásta kom svo til mín og við kúrðum og horfðum á John Tucker must die með Urði. Sótti svo mömmu og pabba útí bæ um miðnætti og fór með þau að kaupa hamborgara.
Fór svo heim og steindrapst uppí rúmmi úr þreytu.
Ég held ég hafi fengið allar gerðir þynnku þennan dag!

Emma hringdi í mig í nótt. Ég bara wtf? Am i dreaming..
Neinei, mig var ekki að dreyma! Hún hringdi og spurði hvenær það væri hægt að sækja um í VMA.
Spurning hvaða pælingar eru í henni?
Það væri frábært að fá hana aftur heim!
Sweet home Akureyri!
Emma komdu heim.. Held að við stelpurnar værum allar meira en til i það!

Allavega, ég ætla að fara að kíkja á sjónvarpið, svæfa Tinnu og keyra svo kannski eins og einn eða tvo hringi í bænum.

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 18:14:21 / Erika

Spurningar..

Spurning um að fara að drulla sér upp af feita rassinum og drífa sig í ræktina?
Spurning um að hætta að borða hamborgara?
Spurning um að hætta að narta í franskar í vinnuni?
Spurning um að hætta aftur að drekka kók?
Spurning um að panta tíma í plokkun og litun?
Spurning um að kaupa ljósakort?
Spurning um að fara í neglur?
Spurning um að finna út hvernig ég get haft hárið?
Spurning um að minnka nammið?
Spurning um að fara að hugsa betur um sjálfa mig?

Ég vaknaði með þvílíka ljótu í morgun! Hef ekki verið með svona hrikalega ljótu í einhvern tíma. Vona að ljótutímabilið sé ekki að koma aftur. Þegar maður vaknar og finnst allt ómögulegt við sjálfa/n sig og nennir ekki að gera neitt í útlitinu. Ég hata ljótutímabilið.


Stundum líður manni bara svona..

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 00:36:13 / Erika

Beat that!

Ég nenni ekki að leika þennan leik lengur Karen.. Hann er asnalegur af því að ég vinna aldrei!

Heyrðu, í gær átti Thelma afmæli. Loksins orðin að konu.. hahaha!
Fórum út að borða á Belluna og rúntuðum smá.. örlítið.. ekkert mikið.. neee.. Do we ever do that?! .. Didn't think so..!
Allavega.. Margt sem gerðist á þessum rúnti, Thelma sá dauða kanínu, og fugla.
Dauða kanínan reyndist vera hestaskítur! og fuglarnir voru snjór! Flottur Thelma!
Sáum svo anorexíuhús..
Anorexíuhús.. Omg stelpur! það er ekki til.. Erum við geðveikar eða?
Kvöldið var allavega gott.. pínu "Flepp skeluru" í gangi þar sem við tókum nokkra 10-13,14 ára takta á þetta.. Haha.. Allir þurfa að upplifa eitt og eitt svoleiðis kvöld þegar maður fullorðnast!

Vá Karen.. Geeee, So I don't have a boyfriend, Rub it in!
Hahahaha..

Mér finnst samt einhvernveginn allir í kringum mig vera að finna sér kærusta/kærustu..
Meira samt kærasta, en samt ekki..
You're all leaving me here alone in the single zone =/

Er kannski pínu snemmt að vera farin að hafa áhyggjur af því að ég eigi eftir að enda gömul og ein með 5 ketti og dóttur sem kemur í heimsókn á sunnudögum?
jaaá kannski..
En samt hef ég þær og það er bara ekkert við því að gera!

    

Pís át skeluru!

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7